Til upplýsinga
Eins og er stendur engin könnun yfir á vegum Samkeppniseftirlitsins.
Hlutverk Samkeppniseftirlitsins er að efla virka
samkeppni í viðskiptum á Íslandi, vinna gegn óhæfilegum hindrunum og takmörkunum
á frelsi í atvinnurekstri, sem og gegn skaðlegri fákeppni og samkeppnishömlum,
neytendum, fyrirtækjum og íslensku samfélagi í heild sinni til hagsbóta.
Til að ná fram þessum markmiðum þarf Samkeppniseftirlitið oft og tíðum að afla upplýsinga og sjónarmiða frá fyrirtækjum, neytendum og öðrum í tengslum við rannsóknir á málum. Hluti af þessari upplýsingaöflun eru kannanir sem Samkeppniseftirlitið lætur framkvæma, þar sem könnunarfyrirtæki er falið að kanna hug viðskiptavina, keppinauta, neytenda, eða annarra, eftir því sem við á, til málefna sem skipta máli við rannsókn viðkomandi máls.
Ávallt er farið með svör einstakra aðila við slíkum könnunum sem trúnaðarmál. Samkeppniseftirlitið fær ekki afhentar upplýsingar um svör einstakra þátttakenda, heldur afhendir framkvæmdaraðili könnunar eftirlitinu ópersónugreinanlegar niðurstöður. Framkvæmdaraðili könnunar undirritar ávallt samning um trúnað og þagnarskyldu við framkvæmd hennar.
Það er þýðingarmikið fyrir Samkeppniseftirlitið að góð þátttaka sé í þeim könnunum sem framkvæmdar eru fyrir stofnunina. Þau mál sem eftirlitið vinnur að skipta íslenskt samfélag og landsmenn alla oftar en ekki miklu máli og því mikilvægt að viðhorf þeirra sem leitað er til endurspeglist í niðurstöðu framkvæmdra kannana.
Því væntir Samkeppniseftirlitið góðs samstarfs og viðleitni, hafir þú verið valin(n) í úrtak í einni af könnunum eftirlitsins.
Hafir þú einhverjar spurningar eða athugasemdir við framkvæmd kannana á vegum Samkeppniseftirlitsins, þá er velkomið að hafa samband við Val Þráinsson, aðalhagfræðing Samkeppniseftirlitsins, í síma 585-0717 eða í tölvupósti, valur@samkeppni.is.