Þekkir þú samkeppnislögin

Þetta einfalda sjálfsmat getur hjálpað þér við að meta eigin þekkingu og stöðu gagnvart samkeppnislögum.

Það getur verið ólöglegt að ræða um verðlagningu við starfsmenn annarra fyrirtækja á sama markaði eða tengdum markaði?

Já, stundum er einn fundur það eina sem þarf til þess að koma sér í vanda.

Sem viðskiptavini er mér heimilt að segja seljanda hvaða verð þú færð annarstaðar?

Nei, sem viðskiptavin er þér heimilt að segja seljanda hvað verð býðst annarstaðar. Það stuðlar að því að samkeppni um verð til kaupenda haldist virk.

Það er í lagi að sammælast um verð við keppinauta til þess að forðast tap?

Nei, að ræða verlagningu annars eða beggja aðila við keppinaut er ólöglegt og getur þýtt að málsaðilar þurfi að greiða háar sektir.

Fyrirtæki meiga gera með sér samkomulag um að eiga ekki viðskipti við viðskiptavini hvors annars?

Nei, það getur verið ólöglegt fyrir keppinauta að skipta milli sín mörkuðum, hvort heldur sem er eftir svæðum eða tegund viðskiptavina, og eiga ekki viðskipti við viðskiptavini hvors annars.

Verðsamráð er ólöglegt athæfi sem getur leitt til fangelsisvistar?

Já, einstaklingar geta sætt fangelsisvistun vegna aðildar að ólögmætu verðsamráði.

Það má ræða innihald tilboða við aðra keppinauta (t.d. verð) þegar unnið er að tilboðum vegna útboða?

Nei, það er ólöglegt að bera saman bækur við keppinauta og ræða tilhögun tilboða, t.d. hvaða verð þeir ætla að bjóða.

Fyrirtækjum í markaðsráðandi stöðu ber að sýna sérstaka varkárni í háttsemi sinni til þess að skaða ekki að óþörfu stöðu minni keppinauta?

Já, samkeppnislög takmarka hvað markaðsráðandi fyritæki mega gera. Markaðsráðandi aðilar mega ekki misnota stöðu sína gagnvart minni aðilum á markaðnum.

Ef þú kemur upp um ólögmætt samráð sem þú ert aðili að getur komið til lækkunar á sektum?

Já, ef þú ert fyrstur til þess að upplýsa um samráð og aðstoðar við rannsókn málsins getur komið til lækkunar á sektum.

Hversu háar sektir má leggja á fyrirtæki sem brjóta samkeppnislög? -> þarf að breyta eða umorða spurninguna!!!

Allt að 10% að heildar ársveltu fyrirtækis og móðurfélags. Upphæðir geta því verið mjög ólíkar eftir því hver á í hlut. Því til viðbótar geta önnur félög gert skaðabótakröfur og heildar upphæðin því hækkað verulega.

Hvers vegna telur þú mikilvægt að fara eftir samkeppnislögum? -> þarf að breyta eða umorða spurninguna!!!

Ekkert svar.