Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Erindi Samtaka iðnaðarins vegna tilboða í ræsarör fyrir Vegagerð ríkisins

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 33/1994
  • Dagsetning: 6/10/1994
  • Fyrirtæki:
    • Samtök iðnaðarins
    • Ríkiskaup
  • Atvinnuvegir:
    • Byggingarþjónusta
    • Útboð framkvæmda
  • Málefni:
    • Samkeppni og hið opinbera
  • Reifun

    Samtök iðnaðarins óskuðu eftir að kannaðir yrðu meintir óeðlilegir viðskiptahættir við tilboðsgerð í framleiðslu á ræsarörum fyrir Vegagerð ríkisins. Samkeppnisráð taldi í ákvörðun sinni að ekki hefðu komið fram vísbendingar um að viðskiptahættir sem vörðuðu við samkeppnislög hefðu verið stundaðir við tilboðsgerð í útboðinu og því ekki ástæða til að aðhafast.