Ákvarðanir
Samningar Kópavogsbæjar vegna líkamsræktarstöðva sem reknar eru í húsakynnum sundlauga Kópavogs
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 3/2012
- Dagsetning: 17/2/2012
-
Fyrirtæki:
- Medic Operating AB
- Kópavogsbær
-
Atvinnuvegir:
- Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
- Afþreying, íþróttir, happdrætti og fjárhættuspil
-
Málefni:
- Samkeppni og hið opinbera
-
Reifun
Samkeppniseftirlitið og Kópavogsbær hafa gert með sér sátt vegna útleigu bæjarins á húsnæði til reksturs líkamsræktarstöðva samhliða sölu á árskortum í sundlaugar bæjarins. Viðskiptavinir líkamsræktarstöðvanna fengu mikinn afslátt af almennu verði árskorta í sundlaugarnar. Í sáttinni er m.a. kveðið á um að Kópavogsbær skuli bjóða leigu á umræddu húsnæði út á markaði og selja viðskiptavinum líkamsræktarstöðvanna aðgang að sundlaugum og baðaðstöðu á verði, sem ekki verði lægra en lægsta gjald sem almennum sundlaugargestum standi til boða, þegar þeir kaupa sér aðgang sem einstaklingar.