Ákvarðanir
Yfirtaka Íslandsbanka hf. á Höfðatorgi ehf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 22/2012
- Dagsetning: 8/10/2012
-
Fyrirtæki:
- Íslandsbanki hf.
- Höfðatorg ehf.
-
Atvinnuvegir:
- Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
- Fasteignasala
-
Málefni:
- Samrunamál
-
Reifun
Íslandsbanki hf. hefur tekið yfir Höfðatorg ehf. Höfðatorg er fasteignafélag og felst meginstarfsemi félagsins í útleigu fasteigna. Það var niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að yfirtakan raskaði samkeppni og að nauðsynlegt væri að setja samrunanum skilyrði. Féllust samrunaaðilar á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni. Um er að ræða skilyrði sem miða að því að draga úr samkeppnisröskun sem stafað getur af eignarhaldi bankans á fyrirtækjum. Hefur Íslandsbanki fallist á að hlíta þeim skilyrðum með undirritun sáttar