Ákvarðanir
Yfirtaka Hornsteins ehf. á BM Vallá ehf., Björgun ehf. og Sementsverksmiðjunni ehf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 20/2014
- Dagsetning: 4/7/2014
-
Fyrirtæki:
- Björgun ehf.
- BM Vallá ehf.
- Hornsteinn ehf.
- Sementsverksmiðjan ehf.
-
Atvinnuvegir:
- Byggingarþjónusta
- Framleiðsla á byggingarefnum
-
Málefni:
- Samrunamál
-
Reifun
Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf. hefur tekið yfir meirihluta í BM Vallá ehf., Björgun ehf. og Sementsverksmiðjunni ehf. og fer nú með yfirráð yfir þeim fyrirtækjum. Í ljósi mögulegra samkeppnishindrana sem yfirtakan gæti haft í för með sér hafa samrunaaðilar og Samkeppniseftirlitið gert með sér sátt sem ætlað er að taka á slíkum hindrunum.