Ákvarðanir
Kaup Samkaupa hf. á verslunarrekstri í eigu Miðbúðarinnar ehf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 21/2016
- Dagsetning: 11/8/2016
-
Fyrirtæki:
- Samkaup hf.
- Miðbúðin ehf.
-
Atvinnuvegir:
- Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
- Matvörur
-
Málefni:
- Samrunamál
-
Reifun
Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Samkaupa hf. á verslunarrekstri í eigu Miðbúðarinnar ehf. Samkaup rekur 50 verslanir víðsvegar um landið og er þriðji stærsti aðilinn í sölu á dagvörum í dagvöruverslunum. Starfsemi Miðbúðarinnar felst í rekstri stakrar dagvöruverslunar í Reykjavík. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós að ekki er ástæða til að ætla að samþjöppun á skilgreindum markaði þessi máls í kjölfar samrunans geti verið grundvöllur samkeppnisbresta. Þá er ekki ástæða til að ætla að samkeppni raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Að undangenginn rannsókn er það niðurstaða eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast vegna þessa samruna á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005.