Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Árvakurs hf. á útvarpsrekstri K100 og Retro 895

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 31/2016
  • Dagsetning: 3/11/2016
  • Fyrirtæki:
    • Síminn hf.
    • Árvakur hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun
    • Ljósvakamiðlar
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar kaup Árvakurs hf. á útvarpsrekstri K100 og Retro 895. Tilkynning um samrunann barst með bréfi dagsettu 7. október 2016 en með bréfinu fylgdi samrunaskrá, sbr. 5. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga nr. 44/2005 og reglur nr. 684/2008 um tilkynningu samruna með síðari breytingum. Með bréfi dags. 12. október 2016 barst viðauki við samrunatilkynninguna þar sem veittar voru nánari upplýsingar um samrunann. Um er að ræða samruna sem fellur undir bæði samrunaákvæði samkeppnislaga og 62. gr. b fjölmiðlalaga nr. 38/2011. Með kaupunum eignast Árvakur ákveðinn búnað, tíðniheimildir og annað sem nauðsynlegt er til að stunda útvarpsrekstur.  Að undangenginni rannsókn og í ljósi alls framangreinds, er það niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að engar vísbendingar séu um að kaup Árvakurs á útvarpsrekstri K100 og Retro 895 hafi í för með sér að samkeppni, fjölræði eða fjölbreytni á mörkuðum raskist með umtalsverðum hætti þannig að þörf sé á íhlutun. Eru því ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans.