Ákvarðanir
Aðgerðir til þess að bæta samkeppni í fasteignasölu
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 43/2017
- Dagsetning: 15/12/2017
-
Fyrirtæki:
- Félag fasteignasala
-
Atvinnuvegir:
- Sérfræðiþjónusta og önnur þjónusta
- Fasteignasala
-
Málefni:
- Ólögmætt samráð
-
Reifun
Félag fasteignasala, FF, gerði sátt við Samkeppniseftirlitið vegna brota á 12. gr., sbr. 10. gr., samkeppnislaga. Með sáttinni viðurkennir FF ólögmætt samráð innan félagsins og fellst á að greiða 6 milljónir króna í stjórnvaldssekt vegna þeirra. Samhliða sektinni fellst FF einnig á að gera frekari breytingar á starfsemi sinni til bóta fyrir samkeppni á vettvangi fasteignasölu.