Ákvarðanir
Ákvörðun til bráðabirgða: Krafa um að beitt verði íhlutun gagnvart Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 1/2004
- Dagsetning: 19/5/2004
-
Fyrirtæki:
- Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf
- Íslenskur markaður ehf.
-
Atvinnuvegir:
- Samgöngur og ferðamál
-
Málefni:
- Samkeppni og hið opinbera
-
Reifun
(Sjá einnig ákvörðun nr. 2/2003) Erindi barst frá Íslenskum markaði (ÍM) vegna uppsagnar flugstöðvarinnar (FLE) á leigusamingi fyrirtækisins sem taldi það brot á ákvörðun samkeppnisráðs nr. 2/2003 þar sem m.a. var kveðið á um að FLE skyldi fresta framkvæmd forvals að hluta. Samkeppnisstofnun tók bráðabirgðaákvörðun í þessu máli þar sem fram kemur að FLE hafi brotið gegn umræddri ákvörðun.