Ákvarðanir
Kaup Egg ehf. (BL ehf.) á Mítru ehf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 19/2022
- Dagsetning: 4/8/2022
-
Fyrirtæki:
- Egg ehf.
- BL ehf.
- Mítra ehf.
-
Atvinnuvegir:
- Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
- Vélar og tæki
-
Málefni:
- Samrunamál
-
Reifun
Samkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar kaup Egg ehf. (BL ehf.) á 100% hlut í Mítru ehf.
Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að sá samruni sem á sér stað með kaupunum hindri ekki virka samkeppni. Þá leiði hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.