Ákvarðanir
Ósk um framlengdan gildistíma á undanþágu fyrir Bifreiðastöð Reykjavíkur til að gefa út sameiginlegan hámarksökutaxta fyrir leigubifreiðastjóra sína
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 33/2007
- Dagsetning: 2/7/2007
-
Fyrirtæki:
- Bifreiðastöð Reykjavíkur
-
Atvinnuvegir:
- Samgöngur og ferðamál
- Leigubílaþjónusta
-
Málefni:
- Undanþágur
-
Reifun
Samkeppniseftirlitið hefur að undanförnu haft til umfjöllunar nokkur mál sem varða samkeppnisaðstæður á leigubifreiðamarkaðnum.
Einu málinu lauk með því að Samkeppniseftirlitið birti samgönguráðherra, af gefnu tilefni, álit (nr. 2/2007) vegna samkeppnishindrandi ákvæða í lögum og reglum um leigubifreiðar. Er því beint til ráðherra að hann beiti sér fyrir því að hinum samkeppnishamlandi lögum og reglugerðum verði breytt þannig að samkeppni fái þrifist á leigubifreiðamarkaðnum til hagsbóta fyrir almenning.
Jafnframt því að beina áliti til samgönguráðherra hefur Samkeppniseftirlitið tekið þrjár ákvarðanir sem varða leigubifreiðar og rekstur þeirra. Í ákvörðun nr. 28/2007 kemst stofnunin að þeirri niðurstöðu að hópur leigubifreiðastjóra sem störfuðu á leigubifreiðastöðvunum BSH í Hafnarfirði og Aðalbílum í Reykjanesbæ hafi haft með sér ólögmætt samráð er þeir sammæltust um að segja upp samningum sínum við bifreiðastöðvarnar. Ákvarðanir nr. 33/2007 og 34/2007 fjalla um undanþágur til eins árs til handa leigubifreiðastöðvunum Hreyfli annars vegar og BSR hins vegar að gefa út hámarksökutaxta fyrir hvora stöð fyrir sig.