Ákvarðanir
Samruni Heimilistækja ehf. og Ásbjörns Ólafssonar ehf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 24/2022
- Dagsetning: 19/10/2022
-
Fyrirtæki:
- Ásbjörn Ólafsson ehf.
- Heimilistæki ehf.
-
Atvinnuvegir:
- Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
- Bygginga- og heimilisvörur (heimilistæki, föt, snyrtivörur)
-
Málefni:
- Samrunamál
-
Reifun
Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Heimilistækja ehf. og Ásbjörns Ólafssonar ehf. Samkvæmt samrunaskrá er helsta skörun á starfsemi félaganna á markaði fyrir sölu á húsbúnaðarvöru þar sem Ásbjörn Ólafsson starfar að mestu leyti á heildsölustigi á meðan Heimilistæki starfa aðallega á smásölustigi.
Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði þar af ekki til myndunar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.