Ákvarðanir
Samruni Langasjávar ehf. og K-102 ehf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 30/2022
- Dagsetning: 21/12/2022
-
Fyrirtæki:
- Langisjór ehf.
- K-102 ehf.
-
Atvinnuvegir:
- Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
-
Málefni:
- Samrunamál
-
Reifun
Samkeppniseftirlitið hefur haft til umfjöllunar samruna Langasjávar ehf. og K-102 ehf. Samkvæmt samrunaskrá er Langisjór eignarhaldsfélag sem á hluti í félögum í ýmsum rekstri, t.a.m. á sviði matvælaframleiðslu, byggingastarfsemi og útleigu íbúðarhúsnæðis á almennum markaði. K-102 er móðurfélag Freyju ehf. sem hefur að meginstarfsemi framleiðslu og sölu á sælgæti.
Að undangenginni rannsókn og með hliðsjón af gögnum málsins er það mat Samkeppniseftirlitsins að samruninn hindri ekki virka samkeppni og leiði þar af ekki til myndunar á markaðsráðandi stöðu. Þá leiðir hann ekki til þess að samkeppni á markaði raskist að öðru leyti með umtalsverðum hætti. Því eru ekki forsendur til að aðhafast vegna samrunans á grundvelli 17. gr. c. samkeppnislaga nr. 44/2005.