Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Ísafold Capital Partners hf., IC 1 ehf. og Steinsteypunar ehf

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 18/2024
  • Dagsetning: 1/7/2024
  • Fyrirtæki:
    • Ísafold Capital Partners hf.
    • IC 1 ehf.
    • Steinsteypan ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Byggingarþjónusta
    • Framleiðsla á byggingarefnum
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið tók afstöðu til samruna IC 1 ehf. og Steinsteypunar ehf. IC 1 er eignarhaldsfélag í fullri eigu MF3 hs. sem er hlutdeildarsjóður í rekstri Ísafold Capital Partners hf. II slhf.

    Öryggisgirðingar var stofnað árið 2003 og skráður tilgangur Steinsteypunnar sé m.a. rekstur steypustöðvar, framleiðsla og sala á steinsteypu og tengdum vörum og rekstur bifreiða sem tilheyra starfsemi félagsins.

    Félögin starfa því á ólíkum mörkuðum, en að mati Samkeppniseftirlitsins hefur ekkert komið fram við rannsókn málsins sem gefur tilefni til að skilgreina markaði málsins með öðrum hætti en þeim sem samrunaaðilar hafa talið og gert hefur verið í fyrri ákvörðunum Samkeppniseftirlitsins. Þar sem ekki er skörun í starfsemi samrunaaðila eða félaga í samstæðu þeirra, né er kaupandi að taka yfir starfsemi fyrirtækis sem framleiðir og/eða selur aðföng fyrir starfsemi hins, er hvorki um láréttan né lóðréttan samruna að ræða. Ljóst er því að fjárfesting og kaup IC 1 á Steinsteypunni telst til samsteypusamruna í samkeppnisréttarlegum skilningi.