Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf.,M og S ehf. og HSTN ehf. (Möl og sandur)

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 30/2024
  • Dagsetning: 19/12/2024
  • Fyrirtæki:
    • Eignarhaldsfélagið Hornsteinn ehf.
    • M og S ehf.
    • HSTN ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Byggingarþjónusta
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Þann 4. apríl 2024 var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna HSTN ehf. og M og S ehf. HSTN er dótturfélag Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf., en það á dótturfélögin og fyrirtækin BM Vallá, Björgun og Sementsverksmiðjuna sem starfa samkvæmt samrunaaðilum við öflun hráefna, framleiðslu, sölu og þjónustu á byggingamarkaði og við mannvirkjagerð á Íslandi. Samruni Eignarhaldsfélagsins Hornsteins ehf. og M og S ehf. gegnum HSTN ehf. felur í sér samruna í skilningi samkeppnislaga. Samkeppniseftirlitið telur ekki forsendur til þess að aðhafast frekar í málinu.