Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Samruni Eignarhaldsfélagsins Sævarhöfða ehf. og Bifreiða og Landbúnaðarvéla ehf

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 7/2008
  • Dagsetning: 5/2/2008
  • Fyrirtæki:
    • Sævarhöfði ehf.
    • Bifreiðar og Landbúnaðarvélar ehf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Vélar og tæki
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Með bréfi dags, 8. október 2007, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um kaup Eignarhaldsfélagsins Sævarhöfða ehf. á Bifreiðum og landbúnaðarvélum ehf. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.