Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup 365 miðla ehf. á útvarpsstöðvunum Kiss FM og XFM af Íslenska útvarpsfélaginu ehf.

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 7/2007
  • Dagsetning: 7/3/2007
  • Fyrirtæki:
    • 365 miðlar ehf.
    • Kiss FM
    • XFM
  • Atvinnuvegir:
    • Fjarskipti, upplýsingatækni og fjölmiðlun
    • Ljósvakamiðlar
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun Með bréfi, dags. 15. janúar 2007, var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um kaup 365 miðla ehf. á öllum þeim tækjum sem notuð höfðu verið til reksturs útvarpsstöðvanna Kiss FM og XFM og voru í eigu Íslenska útvarpsfélagsins ehf., ásamt „lógóum“ beggja stöðva og kallmerkjum. Að mati Samkeppniseftirlitsins fela kaupin í sér samruna í skilningi 4. og 17. gr. samkeppnislaga og fellur samruninn undir samrunaeftirlit 17. gr. laganna þar sem veltuskilyrði ákvæðisins eru uppfyllt. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa hins vegar ekki til kynna að samningurinn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.