Ákvarðanir
Kaup Gámaþjónustunnar hf. og Furu ehf. á hlutum í Efnamóttökunni hf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 57/2008
- Dagsetning: 23/10/2008
-
Fyrirtæki:
- Gámaþjónustan hf. Fura ehf. Efnamóttakan hf
-
Atvinnuvegir:
- Umhverfismál
- Sorp (hirðing og eyðing)
-
Málefni:
- Samrunamál
-
Reifun
Með bréfum, dags. 19. september sl. og 26. September sl., var Samkeppniseftirlitinu tilkynnt um samruna kaup Gámaþjónustunnar hf. og Furu ehf. á Efnamóttökunni hf. Athuganir Samkeppniseftirlitsins gefa ekki til kynna að samruninn muni raska samkeppni. Í ljósi þessa er það mat eftirlitsins að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.