Ákvarðanir
Kaup Sparisjóðs Mýrarsýslu á Sparisjóð Ólafsfjarðar
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 46/2007
- Dagsetning: 30/8/2007
-
Fyrirtæki:
- Sparisjóður Mýrarsýslu
- Sparisjóður Ólafsfjarðar
-
Atvinnuvegir:
- Fjármálaþjónusta
- Viðskiptabankaþjónusta
-
Málefni:
- Samrunamál
- Reifun Með bréfi dags. 21. maí tilkynnti Sparisjóður Mýrarsýslu Samkeppniseftirlitinu um kaup sín á Sparisjóð Ólafsfjarðar. Bréfinu fylgdi samrunaskrá þar sem framsetningin var ekki í samræmi við viðauka í reglum nr. 881/2005 um tilkynningu um samruna. Fullnægjandi upplýsingar bárust með bréfi dagsettu 18. júlí, mótteknu 23. júlí. Rannsókn Samkeppniseftirlitsins benti ekki til þess að röskun yrði á samkeppni vegna samruna aðila. Sá Samkeppniseftirlitið því ekki tilefni til þess að aðhafast vegna samrunans.