Ákvarðanir
Samruni Mest ehf., og Timburs og Stáls ehf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 41/2007
- Dagsetning: 17/8/2007
-
Fyrirtæki:
- Mest ehf.
- Timbur og Stál ehf.
-
Atvinnuvegir:
- Byggingarþjónusta
- Framleiðsla á byggingarefnum
-
Málefni:
- Samrunamál
- Reifun Upphaflega var tilkynnt um samruna Mest ehf. og Timburs og stáls ehf. með bréfi dags. 27. apríl 2007. Fullnægjandi samrunatilkynning, sem uppfyllti í öllu skilyrði þau sem gerð eru til samrunatilkynninga skv. 17. gr. samkeppnislaga og reglna nr. 880/2005, um tilkynningu samruna ásamt fylgigögnum, barst ekki hins vegar ekki fyrr en 22. júlí sl. Athugun Samkeppniseftirlitsins leiddi ekki í ljós nein atriði sem bentu til þess að samruninn myndi raska samkeppni. Að mati Samkeppniseftirlitsins er því ekki ástæða til þess að aðhafast frekar vegna samrunans á grundvelli 17. gr. samkeppnislaga.