Ákvarðanir
Yfirtaka Eignarhaldsfélagsins Vestia ehf., á Plastprenti hf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 20/2010
- Dagsetning: 8/6/2010
-
Fyrirtæki:
- Eignarheldsfélagið Vestia ehf.
- Plastprent hf.
-
Atvinnuvegir:
- Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
- Iðnaðarframleiðsla, ekki tilgreind annars staðar
-
Málefni:
- Samrunamál
-
Reifun
Samkeppniseftirlitið hefur sett yfirtöku Eignarhaldsfélagsins Vestia ehf. (dótturfélag Landsbankans) á Plastprent hf. ítarleg skilyrði, sem miða að því að draga úr samkeppnisröskun sem stafað getur af eignarhaldi bankans á fyrirtækinu en Plastprent hefur sterka stöðu á markaðnum fyrir framleiðslu á plastvörum. Hefur Vestia fallist á að hlíta þeim skilyrðum sem sett eru fram í ákvörðuninni, með undirritun sáttar.
Samkeppniseftirlitið hefur áður fjallað um sambærileg mál. Er m.a. fjallað nánar um þau í fréttatilkynningu, dags. 31. mars sl.