Ákvarðanir
Samruni Kaupfélags Skagfirðinga svf. og Tengils eignarhaldsfélags ehf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 19/2009
- Dagsetning: 6/5/2009
-
Fyrirtæki:
- Kaupfélag Skagfirðinga svf.
- Tengill eignarhaldsfélag ehf.
-
Atvinnuvegir:
- Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
-
Málefni:
- Samrunamál
-
Reifun
Þann 21. apríl 2009 barst Samkeppniseftirlitinu tilkynning vegna yfirtöku Kaupfélags Skagfirðinga svf. á Tengli eignarhaldsfélagi ehf. í samræmi við ákvæði 17. gr. a samkeppnislaga nr. 44/2005. Fullnægði tilkynningin skilyrðum samkeppnislaga og reglna nr. 684/2008 um tilkynningu samruna en félögum sem ekki starfa á sömu mörkuðum er heimilt að skila styttri tilkynningu skv. 6. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga vegna samruna. Samkeppniseftirlitið taldi ekki forsendur til þess að aðhafast vegna samrunans.