Álit
Erindi um að Skógrækt ríkisins hafi ekki farið eftir úrskurði samkeppnisráðs nr. 16/1994 og um meint brot Skógræktarinnar á samkeppnislögum
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 16/1998
- Dagsetning: 25/11/1998
-
Fyrirtæki:
- Barri hf
-
Atvinnuvegir:
- Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
-
Málefni:
- Samkeppni og hið opinbera
-
Reifun
Erindi um að Skógrækt ríkisins hafi ekki farið að ákvörðun um fjárhagslegan aðskilnað og um meint brot Skógræktarinnar á samkeppnislögum. Til að fyrirbyggja hagsmunaárekstur og samkeppnislega mismunun við sölu skógarplantna beindi samkeppnisráð þeim tilmælum til landbúnaðarráðherra að beita sér fyrir því að í frumvarpi að lögum um Skógrækt ríkisins yrði skýrt kveðið á um, í samræmi við fyrirhuguð markmið laganna, að Skógræktin skyldi ekki selja plöntur í samkeppni við einkareknar gróðrarstöðvar.