Leit í úrlausnum: sláið inn efnisorð og/eða veljið úr valmyndinni hér fyrir neðan.

Ákvarðanir

Kaup Festi hf. á Lyfju hf

  • Sækja skjal
  • Málsnúmer: 32/2024
  • Dagsetning: 23/12/2024
  • Fyrirtæki:
    • Lyfja hf
    • Festi hf.
  • Atvinnuvegir:
    • Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
    • Matvörur
    • Lyf, stoðtæki (t.d. gleraugu) og tengdar vörur
  • Málefni:
    • Samrunamál
  • Reifun

    Samkeppniseftirlitið hefur heimilað kaup Festi hf. á Lyfju hf. með skilyrðum. Skilyrði sáttarinnar og aðgerðir Festi hafa að mati Samkeppniseftirlitsins jákvæð áhrif á samkeppni á apóteka- og dagvörumarkaði og telur eftirlitið að sáttin sé fullnægjandi til þess að koma í veg fyrir möguleg skaðleg áhrif af yfirtöku Festi á Lyfju. Í því ljósi var samruninn því samþykktur með skilyrðum. 

    Festi rekur meðal annars verslanir Krónunnar, N1 og Elko. Lyfja rekur samnefnd apótek og heildsöluna Heilsu. Öll framangreind fyrirtæki eru í sterkri stöðu á þeim mörkuðum er þau starfa á. Starfsemi samrunaaðila skarast einkum á markaði fyrir smásölu hreinlætis- og snyrtivara og smásölu á heilsuvörum. Samruninn hefur einnig áhrif á heildsölumarkað fyrir innflutning og dreifingu á heilsuvörum.

    Rannsókn Samkeppniseftirlitsins leiddi í ljós samþjöppun í smásölu hreinlætis- og snyrtivara, og í smásölu heilsuvara (sérstaklega vítamín, bætiefnum og steinefnum) á tilteknum landssvæðum, einkum Austurlandi og Suðurlandi. Þá nýtur Lyfja sterkrar stöðu í sölu þessara vöruflokka á Norðurlandi og á Vestfjörðum. Slík samþjöppun getur leitt til skertar samkeppni en í þessu máli þóttu ekki forsendur til íhlutunar vegna þessa. Festi og Lyfja teljast ekki til sérlega náinna keppinauta í sölu á þessara vara, aðhald frá netverslun er til staða á þessum svæðum og ekki erum að ræða daglegar neysluvörur. Þá lýsti Festi yfir áformum um aukið þjónustustig á landsbyggðinni á dagvörumarkaði ásamt því að verðstefna Krónunnar og Lyfju um eitt verð um allt land muni gilda áfram eftir samrunann

    Við rannsókn málsins lýstu keppinautar Festi og Lyfju í smásölu á þessum vörum yfir áhyggjum af skertu og ójöfnu aðgengi að mikilvægum heilsuvörum, sem skekkja kynni samkeppni á markaðnum.

    Athuganir á samrunum á apótekamarkaði hafa leitt í ljóst mikinn skort á lyfjafræðingum hérlendis. Hömlur á atvinnufrelsi þeirra vegna samkeppnisbanna í ráðningarsamningum, n.t.t. skuldbinding um að hefja ekki störf hjá samkeppnisaðila í tiltekinn tíma eftir að ráðningarsambandinu lýkur, takmarka möguleika smærri keppinauta sem og nýrra aðila til þess að hefja eða útvíkka starfsemi.

    Festi óskaði eftir sáttaviðræðum og lögðu fram tillögur að skilyrðum sem Samkeppniseftirlitið féllst á. Felast skilyrðin aðallega í að i) Heilsa ehf. starfi sjálfstætt með rekstrarlegum aðskilnaði frá Festi við heildsölu heilsuvara og ii) að Festi og Lyfja muni fella niður samkeppnisbönn í ráðningarsamningum lyfjafræðinga og ekki setja slík ákvæði í starfssamninga lyfjafræðinga hjá félaginu.