Markaðsrannsókn á eldsneytismarkaðnum
Breytingar á eldsneytismarkaði - skýrsla nr. 2/2020
Samkeppniseftirlitið hefur birt skýrslu nr. 2/2020 , Breytingar á eldsneytismarkaði – úrlausn samkeppnishindrana sem bent var á í markaðsrannsókn Samkeppniseftirlitsins. Í skýrslunni eru rifjaðar upp samkeppnishömlur sem fjallað var um í frummatsskýrslu vegna markaðsrannsóknar eftirlitsins sem birt var í lok árs 2015 (2/2015) , og gerð grein fyrir breytingum sem orðið hafa í framhaldi eða í tengslum við þá rannsókn.
Frá því að Samkeppniseftirlitið kynnti frummat sitt og benti á leiðir til úrbóta, hefur eftirlitið beint fjórum álitum til stjórnvalda þar sem mælst er til aðgerða til að ráða bót á aðstæðum sem skaðlegar eru samkeppni. Jafnframt hafa fyrirtæki á markaðnum gripið til og skuldbundið sig til breytinga í tengslum við síðari stjórnsýslumál, í samræmi við frummat eftirlitsins í þeim málum, sem miða að því að greiða fyrir samkeppni. Í þessu sambandi má nefna eftirfarandi álit, ákvarðanir og sáttir:
- Álit nr. 1/2017 og 2/2017 - Samkeppnishömlur á eldsneytismarkaði, þar sem því var beint til umhverfis- og auðlindaráðherra og Reykjavíkurborgar að bæta umgjörð skipulags og lóðaúthlutunar. Ekki hefur verið brugðist við tilmælunum.
- Álit nr. 3/2017 og 4/2017 - Samkeppnishömlur á eldsneytismarkaði, þar sem því var beint til samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra og Flutningajöfnunarsjóðs að gera breytingar á umgjörð sjóðsins. Brugðist var við tilmælunum.
- Ákvörðun nr. 8/2019, Samruni N1 hf. og Festi hf, þar sem samrunaaðilar skuldbundu sig m.a. til sölu á eldsneytisstöðvum á höfuðborgarsvæðinu og vörmerkis Dælunnar til nýs aðila og breytinga á umgjörð birgðahalds og dreifingar á eldsneyti, en hvoru tveggja er til þess fallið að efla samkeppni.
- Ákvörðun nr. 9/2019, Samruni Haga hf., Olíuverzlunar Íslands hf. og DGV ehf., þar sem samrunaaðilar skuldbundu sig m.a. til sölu á eldsneytisstöðvum á höfuðborgarsvæðinu til nýs aðila og breytinga á umgjörð birgðahalds og dreifingar á eldsneyti.
- Sátt Olíudreifingar (ODR) við Samkeppniseftirlitið um aukið aðgengi endurseljenda að eldsneyti í heildsölu og aukið aðgengi að þjónustu Olíudreifingar ehf. Sáttin var gerð í tengslum við úrlausn skv. c- og d-lið hér að framan.
- Ákvörðun nr. 39/2020, Bættar samkeppnisaðstæður við sölu flugvélaeldsneytis á flugvöllum innanlands, en með sátt vegna málsins er tryggður jafn og hlutlægur aðgangur til sölu eldsneytis á innanlandsflugvöllum.
Þá hefur verið gengið úr skugga um jafnan og hlutlægan aðgang að aðstöðu Icelandic Tank Storage ehf. í Helguvík, við sölu á flugvélaeldsneyti. Nánar er fjallað um þessar úrlausnir í skýrslunni.
Með hliðsjón af framangreindu hafa orðið talsverðar breytingar á eldsneytismarkaði frá því að markaðsrannsóknin var framkvæmd. Eru þessar breytingar til þess fallnar að greiða fyrir samkeppni á markaðnum, þótt ekki sé á þessu stigi komið í ljós hver endanleg áhrif þeirra verða. Að mati Samkeppniseftirlitsins eru þessar umbætur til þess fallnar að greiða fyrir framþróun orkumarkaða og skapa skilvirkari umgjörð fyrir þau orkuskipti sem framundan eru. Á því sviði eru ýmsar áskoranir sem Samkeppniseftirlitið er að huga að.
Við framkvæmd markaðsrannsóknarinnar reyndist ekki nauðsynlegt að beita íhlutun skv. c-lið 1. mgr. 16. gr. samkeppnislaga, sem heimilar Samkeppniseftirlitinu að grípa til íhlutunar vegna samkeppnishindrandi aðstæðna, þótt þær verði ekki raktar til brota á samkeppnislögum. Jákvætt er að breytingar hafa orðið á markaðinum án þess að grípa hafi þurft til þeirrar heimildar
Myndbönd og viðtöl við erlenda sérfræðinga og innlenda hagsmunaaðila
Myndband - Fundurinn í heild sinni
Myndband - Guðrún Ragnarsdóttir, stjórnarformaður Samkeppniseftirlitisns -
Myndbönd - Frosti Ólafsson, Hermann Guðmundsson, Jóhannes Gunnarsson, Tryggvi Axelsson
Hér svara Frosti Ólafsson (framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs), Hermann Guðmundsson (framkvæmdastjóri KEMI), Jóhannes Gunnarsson (formaður Neytendasamtakanna) og Tryggvi Axelsson (forstjóri Neytendastofu) eftirfarandi spurningum
- Hvers vegna er bifreiðaeldsneytisverð hærra hér á landi en víðast hvar annars staðar?
- Er horft nægilega mikið til samkeppnissjónarmiða við skipulagsgerð sveitarfélaga?
- Hvernig er hægt að auka samkeppni á eldsneytismarkaðnum?
Myndband - Helstu niðurstöður frummatsskýrslu Samkeppniseftirlitsins um eldsneytismarkaðinn.
Myndband - Samantekt á sjónarmiðum hagsmunaaðila um aðgangshindranir og samhæfða hegðun á eldsneytismarkaðnum.
Myndband - Samantekt á sjónarmiðum hagsmunaaðila um verðsamanburð, álagningu, arðsemi og mögulegar úrbætur á eldsneytismarkaðnum.
Myndband - Samantekt viðtala sem Samkeppniseftirlitið tók við forstjóra þýska samkeppniseftirlitsins, forsvarsmenn breska og portúgalska eftirlitsins og Severin Borenstein, prófessor í hagfræði við Berkley háskóla.
Myndband - Pallborð I
Myndband - Pallborð II
Myndband - Lokaorð Páls Gunnars Pálssonar
Opinn fundur
Dagskrá
Fundurinn í heild sinni - Myndband
Guðrún Ragnarsdóttir, stjórnarformaður Samkeppniseftirlitisns - Myndband
Time | Event |
---|---|
9:00 - 9:20 |
Samkeppni á erlendum eldsneytismörkuðum - Myndband Birt verða viðtöl Samkeppniseftirlitsins við eftirfarandi aðila: Andreas Mundt, forstjóri þýska samkeppniseftirlitsins og formaður stýrihóps Severin Borenstein, prófessor í hagfræði við Berkeley háskóla og formaður nefndar João E. Gata, sérfræðingur hjá portúgalska samkeppniseftirlitinu |
9:20 - 9:30 | Helstu niðurstöður frummatsskýrslu Samkeppniseftirlitsins - Myndband |
PALLBORÐ I - Myndband Eru samkeppnishamlandi aðgangshindranir fyrir hendi og ríkir samhæfð hegðun milli olíufélaganna í sölu bifreiðaeldsneytis? |
|
9:30 - 10:30 |
Þátttakendur: - Myndband Jón Björnsson, forstjóri Festi |
10:30 - 10:50 | Hlé |
PALLBORÐ II - Myndband Hvaða viðmið á að nota þegar samkeppni á íslenska eldsneytismarkaðnum er metin og er hægt að auka samkeppni á honum? |
|
10:50 - 11:50 |
Þátttakendur: - Myndband Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB |
11:50 - 12:00 | Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins - Myndband |
Vinsamlegast skráið ykkur á ráðstefnuna með því að senda póst á samkeppni@samkeppni.is
Hægt er að taka þátt í undirbúningi fundarins með því að senda inn spurningar sem nýst geta í pallborði. Óskast þær sendar á samkeppni@samkeppni.is
(Sett á vef 12.09.2016)
Hér svara Frosti Ólafsson (framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs), Hermann Guðmundsson (framkvæmdastjóri KEMI), Jóhannes Gunnarsson (formaður Neytendasamtakanna) og Tryggvi Axelsson (forstjóri Neytendastofu) eftirfarandi spurningum:
- Hvers vegna er bifreiðaeldsneytisverð hærra hér á landi en víðast hvar annars staðar?
- Er horft nægilega mikið til samkeppnissjónarmiða við skipulagsgerð sveitarfélaga?
- Hvernig er hægt að auka samkeppni á eldsneytismarkaðnum?
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna
Frosti Ólafsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs
Hermann Guðmundsson, forstjóri KEMI
Tryggvi Axelsson, forstjóri Neytendastofu
Hér að neðan má finna skjöl og aðrar upplýsingar sem Samkeppniseftirlitið hefur birt í tengslum við rannsóknina.
Almennar upplýsingar um markaðsrannsóknir
- Reglur um markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins nr. 490/2013 (8. 5. 2013)
- Umræðuskjal nr. 2/2012 Markaðsrannsóknir Samkeppniseftirlitsins (3. 2. 2012)
Rannsóknaráætlun
Frummatsskýrslan
- Spurningar og svör vegna frummatsskýrslu (2.03.2016)
- Þriðji hluti frummatsskýrslu, frummat og mögulegar úrbætur (30.11.2015)
- Ágrip frummatsskýrslu (30.11.2015)
- Frummatsskýrslan á pdf formi (30.11.2015 -uppfærð 22.12.2015)
- Vidauki-A.1 Skilgreining landfræðilegra markaða
- Vidauki-A.2 Kostnaðar og ábatagreining
- Vidauki-A.3 Framboðssvædisgreining birgðarhalds eldsneytis
- Vidauki-A.4 Framboðssvæðisgreining smásolu bifreidaeldsneytis
- Vidauki-B.1 Þróun markaðshlutdeildar á smásölustigi
- Vidauki-B.2 Markaðshlutdeild í birgðahaldi
- Vidauki-B.3 Neytendakonnun á meðal einstaklinga
- Vidauki-B.4 Neytendakönnun meðal fyrirtækja
- Vidauki-B.5 Stjórnunar og eignatengsl
- Vidauki-C.1 Samhæfð hegdun
- Vidauki-C.2 Verðleiðtogagreining
- Vidauki-C.3 Ósamhverf verdadlögun
- Vidauki-C.4 Lýsing á áfsláttarfyrirkomulagi olíufelaganna
- Vidauki-C.5 Opinberar samkeppnishomlur
- Viðauki-D.1 Álit vegna flutningsjöfnunar ólíuvara
Sjónarmið sem borist hafa vegna frummatsskýrslu
- Alþýðusamband Íslands (16.3.2016)
- Atlantsolía (16.3.2016)
- Festi (16.3.2016)
- Félag íslenskra bifreiðaeigenda (16.3.2016)
- Fljótsdalshérað (16.3.2016)
- Flutningsjöfnunarsjóður (16.3.2016)
- Gildi (16.3.2016)
- Icelandair (16.3.2016)
- Landssamtök lífeyrissjóða (16.3.2016)
- Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (16.3.2016)
- N1 (16.3.2016)
- Neytendasamtökin (16.3.2016)
- Neytendastofa (16.3.2016)
- Olíudreifing (16.3.2016)
- Olíuverzlun Íslands (16.3.2016)
- Orkustofnun (16.3.2016)
- Reykjavíkurborg (16.3.2016)
- Samtök atvinnulífsins (16.3.2016)
- Samtök verslunar og þjónustu (16.3.2016)
- Skeljungur (16.3.2016)
Þátttaka í opinberri umræðu
Spegillinn RÁS 1: Verðstýring afarkostur dugi aðgerðir ekki. (01.12.2015)
Fréttastofa RÚV: Eldsneytisverð skipti neytendur miklu máli. (30.11.2015)
Samfélagið RÁS 1: Samhæfing olíufélaganna ekki endilega lögbrot. (30.11.2015)
Bylgjan - Reykjavík síðdegis: Ekki sönnun þess að einhver hafi brotið af sér. (30.11.2015)