Ákvarðanir
Beiðni Forlagsins ehf. um endurupptöku ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2008 um samruna JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf.
- Sækja skjal
- Málsnúmer: 47/2017
- Dagsetning: 21/12/2017
-
Fyrirtæki:
- Vegamót ehf.
- JPV útgáfa ehf.
- Forlagið ehf.
-
Atvinnuvegir:
- Neysluvörur, rekstrarvörur o.fl.
- Tímaritaútgáfa og sala
- Bókaútgáfa og sala
-
Málefni:
- Samrunamál
-
Reifun
Í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 47/2017, Beiðni Forlagsins ehf. um endurupptöku ákvörðunar Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2008 um samruna JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf. er fjallað um beiðni Forlagsins ehf. sem er stærsti bókaútgefandi landsins um endurupptöku á skilyrðum sem sett voru í ákvörðun Samkeppniseftirlitsins nr. 8/2008 Samruni JPV útgáfu ehf. og Vegamóta ehf. Við þann samruna varð Forlagið til í núverandi mynd sem öflugasta bókaútgáfa landsins og voru skilyrðin sett til að eyða skaðlegum áhrifum samrunans á samkeppni.
Forlagið hefur óskað eftir að skilyrðin verði felld úr gildi eða dregið úr þeim. Hefur Forlagið mótmælt skilgreiningu markaðarins í málinu og mati á hlutdeild félagsins. Þá telur Forlagið að ákvörðun nr. 8/2008 hafi byggst á röngum forsendum, að aðstæður hafi breyst og einnig að skilyrðin íþyngi félaginu í rekstri.
Athugun Samkeppniseftirlitsins á bókamarkaðnum núna sýnir að staða Forlagsins hefur ekki breyst í meginatriðum á liðnum árum. Forlagið er enn stærsta bókaútgáfan á Íslandi með 45-50% hlutdeild í almennri bókaútgáfu og er með u.þ.b. fjórfalt meiri hlutdeild en sá útgefandi sem næst kemur að stærð sem er Bjartur-Veröld. Þá er Forlagið með mikla breidd í útgáfu samanborið við flesta aðra bókaútgefendur. Er það því niðurstaðan í ákvörðun eftirlitsins að Forlagið sé ennþá í markaðsráðandi stöðu á bókamarkaði.
Samkeppniseftirlitið telur því mikilvægt að skilyrðin sem snúast aðallega um að Forlagið beiti ekki styrk sínum gagnvart keppinautum og skaði þannig samkeppni, gildi áfram. Skiptir líka máli að meirihluti keppinauta sem tók þátt í könnun eftirlitsins telja að skilyrðin hafi stuðlað að aukinni samkeppni og að ekki séu forsendur til að fella þau úr gildi að hluta til eða öllu leyti. Þá telur eftirlitið að Forlagið hafi ekki rökstutt hvernig skilyrðin setji félaginu í raun skorður og hvaða mögulegu áhrif það hafi fyrir það og aðra ef þau yrðu felld niður.