22.5.2024

Hæstiréttur veitir leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar um sölu Símans á Enska boltanum

  • Siminn-enski-boltinn

Hæstiréttur hefur í dag fallist á beiðni Samkeppniseftirlitsins um leyfi til að áfrýja dómi Landsréttar frá 16. febrúar sl., en málið lýtur að því hvort Síminn hafi brotið gegn ákvæðum tveggja sátta sem hann gerði við Samkeppniseftirlitið. Með dómi Landsréttar var héraðsdómur staðfestur, en í honum fólst að ekki var fallist á kröfur Samkeppniseftirlitsins um að staðfest yrði ákvörðun þess um brot Símans, sbr. ákvörðun nr. 25/2020. Frétt Samkeppniseftirlitsins um dóm Landsréttar er aðgengileg hér.

Ákvörðun Hæstaréttar um áfrýjunarleyfi er aðgengileg hér .