Kaup Landsbankans á TM samþykkt með skilyrðum
Samkeppniseftirlitið hefur í dag lokið rannsókn sinni á kaupum Landsbankans á TM. Lýkur rannsókninni með sátt Landsbankans við Samkeppniseftirlitið.
Landsbankinn er, eins og kunnugt er, stærsti viðskiptabanki landsins og býður einstaklingum, fyrirtækjum og fjárfestum upp á alhliða fjármálaþjónustu. TM er þriðja stærsta skaðatryggingafélag landsins og rekur það jafnframt líftryggingastarfsemi gegnum dótturfélag sitt TM líftryggingar hf.
Samruninn er að meginuppistöðu til svonefndur samsteypusamruni þar sem alhliða viðskiptabankastarfsemi rennur saman við vátryggingastarfsemi. Bæði Landsbankinn og TM starfa á fákeppnismörkuðum þar sem talsverðar aðgangshindranir eru fyrir hendi.
Rannsóknin - meginniðurstöður
Við rannsókn málsins óskaði Samkeppniseftirlitið sjónarmiða í opnu umsagnarferli og bárust einkum sjónarmið frá keppinautum samrunafyrirtækjanna. Jafnframt óskaði Samkeppniseftirlitið eftir ítarlegum gögnum frá viðskiptabönkum, sparisjóðum og vátryggingafélögum, í því skyni að meta stöðu samrunaaðila á þeim mörkuðum sem þeir starfa. Jafnframt var við rannsóknina leitað umsagna og frekari upplýsinga sem nauðsynleg þóttu við rannsókn samrunans.
Rannsóknin hefur m.a. leitt í ljós að hlutdeild TM á skaðatryggingamarkaði hefur dregist saman mörg undanfarin ár og eru vísbendingar um að það stafi af veikari samkeppni félagsins um viðskiptavini en áður. Þannig hafi félagið gefið eftir í verðsamkeppni við hin vátryggingafélögin. Ástæða er til að ætla að með nýju eignarhaldi skapist svigrúm og hvatar til aukinnar samkeppni á markaðnum.
Að því er varðar viðskiptabankamarkað sýna fyrirliggjandi gögn gríðarlega sterka stöðu viðskiptabankanna þriggja, á markaði sem varinn er með umtalsverðum aðgangshindrunum. Þær samkeppnishömlur sem að óbreyttu hefðu leitt af samruna Landsbankans og TM tengjast að talsverðu leyti markaðssetningu og sölu vátrygginga TM gegnum dreifikerfi Landsbankans. Telur Samkeppniseftirlitið mikilvægt að gæta að því að samruninn raski ekki samkeppni á grundvelli vöndlunar eða samtvinnunar vátrygginga og viðskiptabankaþjónustu.
Sátt um skilyrði
Á fundi þann 17. desember 2024 gerði Samkeppniseftirlitið Landsbankanum grein fyrir frummati sínu á áhrifum samrunans og reifaði sérstaklega skaðleg áhrif sem af honum gætu hlotist. Þann 23. desember 2024 óskaði Landsbankinn eftir sáttarviðræðum og lagði fram tillögu að mótaðgerðum til að leysa þau samkeppnislegu vandkvæði sem Samkeppniseftirlitið hafði bent á.
Á þeim grunni og eftir frekari viðræður hefur Landsbankinn nú gert sátt við Samkeppniseftirlitið.
Með sáttinni skuldbindur bankinn sig til þess að tryggja að sérstök kjör á vátryggingum TM verði ekki háð því skilyrði að laun viðskiptavinar verði greidd inn á reikning hans hjá bankanum.[1]
Það að fá viðskiptavini í launareikningsviðskipti getur haft mikla þýðingu í samkeppni á viðskiptabankamarkaði. Þannig geta launareikningar talist mikilvæg aðdráttarleið fyrir víðtækari viðskipti. Rannsókn málsins bendir til þess smærri keppinautar á viðskiptabankamarkaði geti átt erfitt með að standa af sér áhrifin af því að bankar með sterka stöðu, líkt og Landsbankinn, bindi sérstök kjör á vátryggingum því skilyrði að viðskiptavinir séu með launareikning hjá viðkomandi banka. Þannig gæti slík háttsemi skert möguleika smærri keppinauta til vaxtar og viðgangs og þeir jafnvel útilokast frá samkeppni um stóran hluta viðskiptavina á markaðnum fyrir almenna viðskiptabankaþjónustu.
Markmiðum eldri sáttar fylgt
Í sáttinni kemur jafnframt fram að Landsbankinn muni leitast við að starfa í samræmi við þau markmið sem fram koma í eldri sátt bankans við Samkeppniseftirlitið sem lýst er í ákvörðun nr. 22/2017, Aðgerðir til að efla samkeppni á viðskiptabankamarkaði. Miðaði umrædd sátt einkum að eftirfarandi:
a) Draga úr kostnaði sem viðskiptavinir verða fyrir þegar skipt er um viðskiptabanka.
b) Stuðla að virkara samkeppnisaðhaldi af hálfu einstaklinga og lítilla fyrirtækja með þeim sem veita viðskiptabankaþjónustu á Íslandi.
c) Vinna gegn aðstæðum sem rennt gætu stoðum undir þögla samhæfingu á markaði/mörkuðum fyrir viðskiptabankaþjónustu.
Með framangreindri sátt samkvæmt ákvörðun nr. 22/2017 var m.a. lagt bann við uppgreiðslugjöldum á lánum sem bera breytilega vexti og jafnframt lýsti Landsbankinn því einhliða yfir með óafturkræfum hætti að hann myndi ekki hækka vexti eða fella niður vaxtaafslátt í eldri íbúðalánasamningum vegna þess að skuldari væri ekki lengur með launareikning eða önnur viðskipti sín hjá bankanum.[2]
Arion banki og Íslandsbanki undirgengust einnig sambærileg skilyrði, með ákvörðunum nr. 24/2017 og 25/2017.
Það skilyrði sem fram kemur í 2. gr. nýju sáttarinnar við Landsbankann kallast einkum á við b- og c‑liði ofangreindra markmiða. Svo sem fram kemur hér að framan er einkum stefnt að því með skilyrði nýju sáttarinnar að vinna gegn því að staða smærri keppinauta á viðskiptabankamarkaði veikist vegna kaupanna á TM því það gæti liðkað fyrir þögulli samhæfingu stóru viðskiptabankanna þriggja.
Samkeppniseftirlitið mun á næstunni birta ítarlega ákvörðun þar sem gerð verður nánari grein fyrir rannsókninni og niðurstöðum hennar.
Sátt Landsbankans og Samkeppniseftirlitsins, dagsett í dag, er aðgengileg hér.
[1] Sáttin tekur ekki aðeins til hlaupareikninga heldur einnig annars konar reikninga sem laun kunna að leggjast inn á. Með sérstökum kjörum samkvæmt framangreindu átt við kjör sem fela í sér frávik frá þeim kjörum sem viðkomandi viðskiptavini byðust á vátryggingum ef laun hans væru ekki greidd inn á reikning hjá bankanum.
[2] Heimildarákvæði þess efnis var að finna í viðkomandi eldri íbúðalánasamningum.