Héraðsdómur staðfestir ógildingu á samruna svínabúa
Í júlí sl. ógilti Samkeppniseftirlitið samruna sem fólst í yfirtöku Stjörnugríss á tilteknum eignum félaganna, sem fóru með rekstur svínabúanna Brautarholts og Grísagarðs. Svínabúin höfðu komist í eigu Arion banka eftir að fyrirtækin sem ráku þau urðu gjaldþrota. Var horft til þess að með kaupum Stjörnugríss á svínabúunum hefði fyrirtækið komist í markaðsráðandi stöðu á markaði fyrir svínarækt og styrkt markaðsráðandi stöðu sína á markaðnum fyrir slátrun á svínum. Þetta, ásamt styrkri stöðu samstæðunnar á eggjamarkaði, styrkti einnig stöðu hennar gagnvart fóðurseljendum, kjötvinnslum og dagvöruverslunum. Taldi Samkeppniseftirlitið ekki sannað að skilyrði reglna um félag á fallanda fæti væru uppfyllt. Í þeim reglum felst að unnt er að heimila samruna sökum alvarlegra fjárhagslegra erfiðleika fyrirtækja.
Stjörnugrís og Arion banki kærðu ákvörðun Samkeppniseftirlitsins til áfrýjunarnefndar samkeppnismála og gerðu margvíslegar athugasemdir við málsmeðferð og niðurstöðu eftirlitsins. Með úrskurði áfrýjunarnefndar frá nóvember 2011 var ákvörðun Samkeppniseftirlitsins hins vegar staðfest.
Arion banki og Stjörnugrís skutu úrskurði áfrýjunarnefndar til Héraðsdóms Reykjavíkur sem í dag kvað upp dóm sinn. Fellst héraðsdómur á það með samkeppnisyfirvöldum að umræddur samruni raski samkeppni og því hafi verið rétt að ógilda hann. Þá hafi málsmeðferð samkeppnisyfirvalda verið lögmæt. Sökum þessa var Samkeppniseftirlitið sýknað af kröfu um ógildingu á framangreindum úrskurði áfrýjunarnefndar.