Samkeppniseftirlitið leitar sjónarmiða vegna kaupa Ardian á Mílu
Samkeppniseftirlitinu hefur borist tilkynning um breytingu á yfirráðum í Mílu hf. Í viðskiptunum felst að AB 855 ehf., sem er dótturfélag tveggja sjóða í rekstri Ardian France SA, kaupir Mílu af Símanum hf.
Samkvæmt samrunaaðilum felst í viðskiptunum breyting á yfirráðum í Mílu en ekki tilkynningarskyldur samruni í skilningi 1. mgr. 17. gr. a samkeppnislaga, þar sem Ardian hafi ekki haft neina starfsemi á Íslandi og veltuskilyrði fyrir tilkynningaskyldu því ekki uppfyllt.
Samkvæmt 3. mgr. 17. gr. b samkeppnislaga getur Samkeppniseftirlitið kallað eftir samrunatilkynningu vegna samruna sem ekki uppfyllir veltuskilyrði laganna að tveimur skilyrðum uppfylltum: Annars vegar að sameiginleg heildarvelta samrunaaðila sé meiri en 1,5 ma.kr. og hins vegar að verulegar líkur séu á því að samruninn geti dregið umtalsvert úr virkri samkeppni.
Til þess að leggja mat á hvort tilefni sé til þess að kalla eftir samrunatilkynningu vegna kaupa Ardian á Mílu óskar Samkeppniseftirlitið eftir sjónarmiðum þeirra hagsmunaaðila sem telja málið sig varða. Þess er óskað að sjónarmið berist eigi síðar en þriðjudaginn 9. nóvember nk. á netfangið magnus@samkeppni.is.
Bréf samrunaaðila til Samkeppniseftirlitsins, dags. 1.nóvember 2021.
Bakgrunnsupplýsingar:
Samkvæmt tilkynningunni er Ardian eitt stærsta sjóðastýringarfyrirtæki Evrópu og hefur reynslu af innviðafjárfestingu til langs tíma. Höfuðstöðvar félagsins eru í París í Frakklandi. Samkvæmt upplýsingum Ardian mun enginn aðili fara með meira en 25% eignarhald í viðkomandi sjóðum sem kaupa Mílu.
Míla er dótturfélag Símans, stærsta fjarskiptafyrirtækis landsins. Míla er heildsölufyrirtæki á fjarskiptamarkaði og felst kjarnastarfsemi þess í að byggja upp og reka innviði fjarskipta á landsvísu.