Samkeppniseftirlitið veitir Lyfjaauðkenni ehf. undanþágu frá 10. gr. samkeppnislaga
Samkeppniseftirlitið hefur haft til skoðunar beiðni Lyfjaauðkenni ehf. um undanþágu frá 10. gr. samkeppnislaga vegna samstarfs lyfjafyrirtækja um stofnun og starfrækslu félagsins.
Tilgangur félagsins er uppsetning og starfræksla lyfjagagnagrunns sem hefur að markmiði að koma í veg fyrir dreifingu falsaðra lyfja og byggir á tilskipun Evrópuþingsins og ráðsins nr. 2011/62/EB og afleiddum gerðum. Reglur þessar hafa ekki verið innleiddar í íslenskan rétt. Starfræksla félagsins var talin fara gegn bannákvæði 10. gr. samkeppnislaga.
Á grundvelli 15. gr. samkeppnislaga var undanþága veitt með tilteknum skilyrðum.