28.8.2024

Sátt Samkeppniseftirlitsins við Hreyfil vegna takmörkunar á atvinnuréttindum leigubifreiðastjóra

  • Taxi-1-

Leigubifreiðastjórum er heimilt að keyra fyrir fleiri en eina leigubifreiðastöð

Samkeppniseftirlitið og Hreyfill svf. hafa gert með sér sátt vegna háttsemi Hreyfils sem fólst í því að banna leigubifreiðastjórum sem eru í þjónustu hjá Hreyfli að nýta sér þjónustu annarra leigubifreiðastöðva. Í sáttinni felst að Hreyfill mun ekki hindra að leigubifreiðastjórar sem keyra fyrir stöðina nýti sér jafnframt aðra þjónustuaðila sem sinna leigubifreiðastjórum. Auk þess mun Hreyfill gera aðrar nauðsynlegar breytingar á annars vegar samþykktum félagsins og hins vegar stöðvarreglum þess til að tryggja samræmi við þær skyldur sem hvíla á Hreyfli samkvæmt samkeppnislögum.

Með sáttinni lýkur rannsókn Samkeppniseftirlitsins á Hreyfli. Rökstudd ákvörðun vegna málsins mun verða birt á næstunni.

Bakgrunnsupplýsingar og almenn leiðbeining til leigubifreiðastöðva

Upphaf málsins má rekja til kvörtunar frá Hopp leigubílum ehf. þar sem kvartað var undan framangreindri háttsemi Hreyfils. Vegna erindis Hopp tók Samkeppniseftirlitið bráðabirgðaákvörðun nr. 28/2023, Sennilegt brot Hreyfils svf. gegn samkeppnislögum, þar sem Hreyfli var gert að láta af háttseminni. Ítarlega er fjallað um málið og málsatvik í bráðabirgðaákvörðuninni.

Var það mat Samkeppniseftirlitsins að í háttsemi Hreyfils fælist sennilegt brot bæði gegn 10. gr., sbr. 12. gr. samkeppnislaga sem varðar ólögmætt samráð og gegn 11. gr. laganna sem varðar misnotkun á markaðsráðandi stöðu. Samkeppnisyfirvöld í Evrópu, m.a. í Finnlandi, hafa fjallað um markaðinn fyrir leigubifreiðar að undanförnu og veitt leiðbeiningar til aðila sem starfa á markaðnum. Hefur m.a. verið bent á að leigubifreiðastöðvar teljast fyrirtæki í skilningi samkeppnislaga sem og hver leigubifreiðastjóri (rekstrarleyfishafi). Í þessu felst að samningar á milli þessara aðila mega ekki fela í sér ólögmætt samráð. Slíkir samningar geta t.d. verið samningar sem takmarka atvinnuréttindi og möguleika leigubifreiðastjóra til þess að nýta sér þjónustu annarra leigubifreiðastöðva.

Samkeppniseftirlitið vill beina þeim almennu tilmælum til leigubifreiðastöðva sem starfa á Íslandi að gæta að því að samningar þeirra við leigubifreiðastjóra feli ekki sér ólögmætar samkeppnishindranir.

Hér má nálgast sáttina.