Kaup Stjörnugríss á eignum svínabúa tekin að nýju til skoðunar
Í febrúar sl. tók Samkeppniseftirlitið ákvörðun nr. 3/2011 vegna samruna sem fólst í kaupum Stjörnugríss hf. á eignum dótturfélaga Arion banka, þ.e. Rekstrarfélagsins Brautar ehf. og LS2 ehf. Þau fyrirtæki hafa haft með höndum rekstur svínabúa og rak Braut svínabú á Brautarholti á Kjalarnesi, en LS2 fór með rekstur svínabúa á Hýrumel og á Stafholtsveggjum í Borgarfirði sem áður tilheyrðu fyrirtækinu Grísagarði. Þessi svínabú höfðu komist í eigu Arion banka eftir að fyrirtækin sem ráku þau urðu gjaldþrota. Þessar eignir voru seldar Stjörnugrísi eftir að bankinn hafði leitað tilboða í þær. Komst Samkeppniseftirlitið að þeirri niðurstöðu að kaup Stjörnugríss á svínabúunum myndi markaðsráðandi stöðu félagsins í svínarækt og styrki markaðsráðandi stöðu félagsins á markaðnum fyrir slátrun á svínum. Undir rekstri málsins var því haldið fram af samrunaaðilum að heimila yrði samrunann vegna reglna samkeppnisréttarins um fyrirtæki á fallandi fæti (e. failing firm defence). Viðurkennt er að slík aðstaða fyrirtækis geti leitt til þess að heimila beri samruna. Ástæðan er sú að í slíkum tilvikum stafa samkeppnishömlurnar ekki af samrunanum sem slíkum heldur af erfiðri stöðu hins yfirtekna fyrirtækis. Féllst Samkeppniseftirlitið á þetta sjónarmið samrunaðila.
Máli þessu var skotið til áfrýjunarnefndar samkeppnismála. Í nýjum úrskurði hennar nr. 1/2011 er staðfest sú niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að samrunin myndi og styrki markaðsráðandi stöðu Stjörnugríss á umræddum mörkuðum. Hins vegar er ákvörðun Samkeppniseftirlitsins um að hafast ekki að vegna samrunans felld úr gildi þar sem ekki hafi verið sýnt fram á að skilyrðin um fyrirtæki á fallanda fæti hafi verið fyrir hendi í málinu. Sönnunarbyrðin um það hvíli á samrunaðilum. Er málinu vísað til Samkeppniseftirlitsins til frekari meðferðar og nýrrar ákvörðunar. Hefur Samkeppniseftirlitið nú þegar tekið mál þetta aftur til athugunar.